Subway knattspyrnumótið í 6. flokki karla fór fram 1. maí
Það var mikið líf og fjör á ÍR-vellinum þann 1. maí. Þá fór þar fram Subway-mót fyrir 6. flokk drengja og höfðu foreldrar pilta úr ÍR veg og vanda að því í samvinnu við fyrrnefndan matsölustað sem vafalítið er með þeim vinsælustu og höfðar ekki síst til yngri kynslóðarinnar.
Þátttakendurnir komu úr tíu félögum: Aftureldingu, Haukum, ÍA, ÍBV, Keflavík, Njarðvík, Kjalarnesi, Selfossi og Skallagrími, auk ÍR, og voru alls um 400 talsins. Var þeim skipt niður í 40 lið og voru keppendurnir í sannkölluðu sumarskapi og sýndu frábær tilþrif; þríhyrningsspil, stungusendingar, skæri og tæklingar og skoruðu þess utan glæsileg mörk með þrumuskotum og kollspyrnum.
Þá er ógetið þeirra sem munstraðir voru í markið, en þeir kunnu sitthvað fyrir sér og köstuðu sér stanga á milli ef þess gerðist þörf.
Subway-mótið er eitt af þessum mótum þar sem allir eru sigurvegarar – burt séð frá úrslitunum – enda fengu allir keppendurnir verðlaunapening í lok móts. Og þegar peningurinn var kominn um háls þeirra tóku þeir undir sig stökk og voru á sekúndubroti komnir inn í íþróttasalinn í ÍR-heimilinu enda vissu þeir hvað beið þeirra þar – gómsætur matur frá Subway sem skolað var niður með ávaxtasafa. Höfðu sumir á orði að þetta væri það besta sem þeir hefðu borðað og vafalítið er matur frá Subway kominn efst á óskalista þeirra.
Að lokum vilja ÍR-ingar þakka keppendum, þjálfurum, dómurum og áhorfendum fyrir þessa frábæru dagsstund, sem og Subway fyrir veittan stuðning við mótið.